Kæru nemendur 3-S
Hérna er annáll ársins skrifaðu frá
mínu sjónarhorni. Nú fáið þið tækifæri á að sjá heiminn með
mínum augum. Skyldulesning allra nemenda 3-S.
Ástæðan fyrir því að annállinn kemur
svona snemma er sú að eftir Páskafríið verða allir uppteknir af
prófunum og nenna ekki að lesa svona langan texta.
(Þessi annáll er aðeins gerður með
góðum hug og á fólk ekki að móðgast yfir hlutum sem sagðir eru
hér)
Já. Nú erum við bara kominn í
páskafrí og djöfull er þetta ár búið að líða hratt. Maður man
ennþá eftir Tarsan sönginum frá Sveini á busadeginum og já
alls ekki gleyma Idolstjörnunni Hlín Völu þegar hún tók lagið
fræga Pepsívængir á sama degi. Eftir það fóru bekkjarpartýin
að fara í gang ,þótt þau séu nú byrjuð að dvína, og þau voru
slöpp. Það getur enginn neitað því.. nema kannski Snædís og
Helgi... efast um að þau muni eftir þeim.. *glugg glugg
glugg*.
Busaballið! Fyrsta ball
vetrarins og þá kom líka upp atvik sem hefur ekki endurtekist
milli bekkjarsystkina. Þið vitið öll hvað ég er að tala um.
Þarf að nefna það. Jæja fyrir ykkur sem fóruð ekki eða þjáist
af gullfiskaminni þá var það þannig að í lok ballsins gerðist
loksins eitthvað mili Jónsa og Margrétar.
Get nú ekki sagt að það hafi
komið á óvart enda bæði módel. Já bíddu hvað var svo næst?
Jaaaaaaá. Diskóballið! Ég sjálfur fór ekki á ballið sjálft en
á fyrirpartýinu mætti ég ferskur. Þar var í fyrsta skipti
dansað... En á diskóballinu gerðist margt sem mér sagt
seinna.
Helgi + Helga(4bekk) og svo
hélt Jónsi ekki hefðinni áfram og fór í faðm stelpu sem
heitir víst hinu fallega nafni Hafdís(4bekk). Ekki er vitað
hvort að Margrét hafi orðið eitthvað fúl? Neeeei líklega ekki
mjög fersk manneskja. Og já ekki gleyma að Þórdís nældi sér í
óþekktan(óþekkann?) gaur. Já en nóg af félagslífinu í bili.
Það má nú alls ekki gleyma brjáluðu Náttúrufræði tímunum hjá
Ragnhildi.
Enginn hefur víst gleymt
blikkinu hennar. Seinna kom þó í ljós að hún var að blikka
sveitastrákinn sæta. Þið vitið hvern ég er að tala um!
Tjáningartímarnir! Þar fór hann Jón Brynjar fremstur í flokki
og sýndi helmingnum af bekknum sinn leynda sjúkdóm sem
kallast víst Geðklofi. Restin af bekknum sá nú hann nú samt
þegar hann endaði tjáningarferil sinn þegar hann tók David
Hasselhoff eftirhermu í leikritinu Dýrasaga. Margir hafa þó
talið að hann hafi gert það bara til að sýna massann(sem fáir
sáu?!). Áhugaverður einstaklingur þar á ferð. VÍ-mr ....
tölum ekkert um það!
Dragkeppnin fór fram þar sem
Hjálmtýr fór með sigur. Sá einstaklingur hefur nú verið verið
orðaður við 3-essarann Hlín Völu. Gerðist eitthvað þar? En
samdægurs fór Paintballkeppni skólans fram þar sem lið 3-S
endaði í 2.sæti þar sem fremstur í flokki var Kjartan sem má
eiginlega segja að hafi verið höfuðástæðan fyrir sigrinum.
Nótabene þá vann paintball liðið okkar tvo svikara sem
spiluðu með öðrum bekkjum... Herra og frú Gestur og
Sigurvin(sigmar). Limbókeppnin fór fram á marmarinum og þar
vann Nemóstjarnan Berglind Ýr. Og ekki gleyma sessinaut
hennar sem gerði sér lítið fyrir og lenti í 2.Sæti í Demó.
Eyrún að sjálfsögðu!
Á alveg pottþétt eftir að verða
farsæl í framtíðinni og ekki gleyma að hún er ’90 módel og
samt er hún alltaf með hærri einkunnir en við. Svo var hún
einnig fulltrúi okkar í 3. Bekkjarráðinu. Hún á hrós skilið
frá öllum bekknum. Landsbankadeildin...við skulum ekkert tala
um það. NEMÓ! Það var líklega skemmtilegast dagur ársins hjá
okkur. Dagurinn byrjaði í morgunmat hjá Snædísi þar sem boðið
var uppá Bakarímat sem hann Stefán reddaði fyrir okkur. Því
næst var farið að horfa á sýninguna Á Tjá og Tundri. Frábær
sýning. En allir eru sammála um að ein ákveðin dansmær í
sýningunni hafi unnið hjörtu allra sem sáu
sýninguna.
Eftir sýninguna fórum við heim
til Elínar og slöppuðum af. Horfðum á Dude where’s my car,
enginn hefur gleymt því hvað Árni hló mikið yfir henni. Næst
var farið heim að gera sig tilbúin(n) fyrir kvöldið. Fyrir
ballið fórum við á Pottinn og Pönnuna og borðuðum þar.
Tölvukennararnir mættu líka og áttu í merkilegum samræðum við
Arnar Freyr þar sem sagðir voru Excel- og Word brandarar og
var þar hlegið dátt.
Svo var ballið sem allir voru
sammála um að hefði verið geeeeðveikt. Silvía Nótt og
Kallarnir mættu og kepptu við Gettu Betur liðið okkar sem
endaði seinna í 2 sæti.Góður árangur. Kosið var og aðeins ein
manneskja fór í framboð. Hlín Vala í listó. Þrátt fyrir
stuðning mótherja hennar(Týra) þá var hún því miður ekki
kosin.
Enskutímar Patricks voru/eru
náttúrulega geðveikir. Þrátt fyrir enga kennaramenntun þá er
hann búinn að standa sig frábærlega... ég meina hvaða kennari
lætur nemendur sína lesa quotes eftir Chuck Norris! Frábær
maður og einnig er Bergþór það einnig.
Hann hefur góða kennsluaðferð.
Gunnhildur Já veistu hún er hörð á heimavinnuni en það
virkar. Allir læra heima og er líka meðaleinkunn okkar úr
prófum svimhá.
Ingibjörg var nátturulega
ligeglad í vetur og ég verðað segja að ég er búin að læra
mjög mikið í vetur. Arna íþró, ströng og allt í allt nokkuð
góður kennari. Sólveig og Jóhanna eru í uppáhaldai hjá mörgum
og ekki af ástæðulausu.
Þó að þau gerðu öll verkefnin
fyrir okkur í excel þá náðum við að læra eitthvað. Ich habe
Angst við hana Frú Ólöf. Alltaf gaman að fara í þýsku hjá
henni og var að sjálfsögðu toppurinn þegar við fórum í
ratleikinn fræga.
Guðrún íslenska gaf okkur
tjáninguna þar sem margir fengu að sýna athyglissýki
sína.
Þannig var fyrsta árið í versló er
liðið og er þannig þessum annáli lokið hjá mér en fyrst vil ég
þakka eftirfarandi manneskjum fyrir gott skólaár:
Andri már: Bretti og golf er hans
mál.
Arnar Freyr: Tölvur eru hæfileikar hans og
að sjálfsögðu bókfærslan líka..... ef einhver þurfti hjálp
við tölvur eða bókfærslu var kallað á hann eða já
stærðfræðina. Hornsteinn bekkjarins
Árni: Hehe... útlit er áhugamál hans. Tanaður
og svakalegur hözzler.
Berglind: Frægasta manneskja bekkjarins
með Eyrúnu. Nemó og limbó. Gerði okkur öll stolt.
Bjarki: Þessi gaur er með helvíti
stórann orðaforða. Brosir líka þegar hann er að
tala.
Elín: ég talaði því miður mjög lítið við hana
en ég veit að hún er ein merkilegasta manneskja
bekkjarins.
Eyrún: Frægasta manneskja bekkjarins
með Berglindi. Demó og 3.Bekkjarráðið. Frábær söngkona.
Félagsleg og bráðgáfuð.
Gestur: Sterkasti maður bekkjarins..
rústaði mér allavega í bekknum. Það tóku allir eftir
honum.
Guðmundur: Bókfærsluséni. Brosmildur
maður. Að mínu mati fór of lítið fyrir honum.
Guðný: Þú fórst frá
okkur.
Helga: Bangsinn fremst sem fær tíu í
öllu. Framúrskarandi nemandi.
Helgi: Snilllli. Þýskumælandi maður
og eins og sannur þýskari þá er hann líka ferskur á
böllum.
Hlín Vala: Myndarleg stelpa þar á ferð.
Reyndi að komast í listó en án árangurs. Hún er líka alltaf
brosandi og hlægjandi. Lífsgleði er málið. Svo er hún líka
með sambönd í 6.bekk. Góð söngkona líka.
Hólmfríður: Eins með hana og Hlín, hefur
gaman að brosa og hlægja.
Jón Brynjar: Þar sem ég er að skrifa
þennan þráð þá hef ég lítið að segja um sjálfan
mig.
Jón Viðar: Ef þú vilt næla þér stelpu
fáðu þá ráð frá honum.
Kjartan: Paintball snilli. Krónumaður.
Hefur ónokkru sinnum notað orðið face.
Krissi: Bretti, bæði snjó og götu,
eru hans mál og er nokkuð slingur í bókfærslunni. Hann á líka
pottþétt flottast bílinn í bekknum.
Margrét: Fjallmyndarleg stelpa. Enda
er hún kominn með strák í fangið á hverju balli.
Matthías: Nemandi sem féll í skuggan en
þeir sem náðu að tala við hann komust að því að hann er einn
hressast og skemmtilegasti nemandi bekkjarins.
Sigríður: Alltaf hress. Skíðamanneskja
og er óhrædd við að spurja kennarann að einhverju sem hún
skilur ekki. Það er eitthvað sem margir ættu að taka sér til
fyrirmyndar!
Sigurvin: Þessi maður á hrós skilið.
Hann er nú búin að sitja hliðiná mér allan veturinn og það
þarf þolinmæði í það..... trúið mér ekki.. spurjið hann. Hann
á mestu þakkir skilið.
Snædís: Sandy sæta. Allir í bekknum
þekkja hana. Hún er alltaf hress og stundum feimin en áfengið
lagar það
.
Stefán: Já, hann stebbi er
náttúrulega ein af þessum persónum sem máttu vera meira
áberandi í bekknum en þegar maður talaði við hann komst maður
að því að hann veit margt sem fáir vita!
Sveinn: Sveitastrákurinn í stóru
borginni! Hann er maður bekkjarins þetta árið. Alltaf gaman
hjá honum. Á þessum skólavetri hef ég aldrei séð hann fúlann.
Það er góður eiginleiki.
Valdís: Mögnuð manneskja. Sama hvað
hún gerir þá gerir hún það af krafti og einbeitingu. Ef þú
ert fúl(l), talaðu þá við hana.
Örn: Hann veit allt. Skil ekki af hverju hann
fór ekki í Gettu Betur. Vanmetnasti nemandi bekkjarins. Ég meina
spurjið hann að einhverju og hann kemur með svar.
Þórdís: Reddaði bekknum með
fyrirpartý og bekkjarpartýi. Vill biðjast afsökunar Þórdís ef
ég hef verið pirrandi í vetur.
Þá vill ég bara segja Takk fyrir
veturinn og takk fyrir mig.
Kv. Jón Brynjar